Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð

STOFNFUNDUR Ljóssins, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöðvar fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra, var haldinn 20 janúar 2006 en síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Markmið Ljóssins er að styðja við þá einstaklinga sem hafa átt erfitt í kjölfar veikinda, út í þjóðfélagið á nýjan leik. Nú koma yfir 100 manns á mánuði í endurhæfingu og stuðning hjá Ljósinu sem hefur aðsetur í eldra safnaðarheimili Neskirkju.

Það hafði verið draumur minn og margra annarra að stofna endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð úti í þjóðfélaginu þar sem krabbameinsgreindir og aðstandendur þeirra gætu komið til að byggja upp líkamlegt, andlegt og félagslegt þrek. Sjúkdómurinn og allt meðferðarferlið hefur áhrif á alla fjölskylduna og það er nauðsynlegt í því samhengi að huga einnig vel að aðstandendum, og frá upphafi hafa þeir verið velkomnir í allt það starf sem fram fer í Ljósinu.

Við í Ljósinu leggjum mikla áherslu á að umhverfið sé styðjandi, að það sé heimilislegt, notalegt og að fólk finni að sé velkomið og allir eru jafn mikilvægir. Við leggjum okkur fram um að taka á móti fólki með hlýju og umhyggju og þannig skapast notalegt andrúmsloft og fólkið finnur fyrir samhug.

Við vinnum mikið með lífsgæðin og lífsgleðina þar sem fólk kemur saman, spjallar, hlær, nýtur þess að vera skapandi og byggja upp þrek eftir oft erfiðar meðferðir. Við leggjum mikla áherslu á að þeir einstaklingar sem koma í Ljósið fái tækifæri til að byggja upp sínar sterku hliðar svo auðveldara verði að takast á við lífið í breyttum aðstæðum. Lífið verður aldrei alveg eins og það var, því sú reynsla sem fólk fær við það að greinast með krabbamein fylgir þeim það sem eftir er. Sumir eru tímabundið í endurhæfingu og fara aftur í sömu hlutverkin og þau voru í fyrir greiningu, en aðrir þurfa að skipta yfir í ný hlutverk og þá er mikilvægt að fá stuðning til að geta horft fram á veginn í nýjum aðstæðum.

Starfsemin

Ljósið er opið alla virka daga frá kl. 8–16 og er dagskrá alla dagana bæði í hópastarfi og einstaklingsvinnu. Dagskráin er þannig úr garði gerð að reynt er að koma til móts við þarfir sem flestra og að hún samanstandi af tilboðum sem ná til líkamlegrar, andlegrar og félagslegrar uppbyggingar. Á þessu ári hafa orðið til þrjú stöðugildi, 1,7 stöðugildi iðjuþjálfa og 1 stöðugildi jógakennara og aðstoðarmanns.

Við leggjum okkur einnig fram um að vera í samvinnu við fyrirtæki og félagasamtök sem koma með námskeið inn í Ljósið og gefa starfinu nýjar víddir.

Sköpun hefur fylgt iðjuþjálfun frá upphafi og var talað um að heilsa og listsköpun tengdust og þannig hefði sköpunin læknandi áhrif. Frá byrjun hefur mikið verið unnið með sköpun í Ljósinu til að veita andlega næringu og sjálfstyrk. Við bjóðum uppá allskonar handverk sem hefur verið vinsælt bæði hjá körlum og konum og má þar nefna, ullarþæfingu, tréútskurð, mósaík, leðurtöskugerð, bútasaum o.fl. Þá hefur leirlistin skipað stóran sess, og nú nýlega bættist glerlist við flóru handverksins.

Jóga hefur verið í boði frá upphafi og nýtur mikilla vinsælda. Við bjóðum reglubundið uppá sjálfstyrkingarnámskeið og fáum þá til liðs við okkur sálfræðing og prest sem er sérmenntaður í fjölskyldufræðum. Við erum í samvinnu við Foreldrahús og þaðan koma tveir listmeðferðarfræðingar með 10 vikna námskeið til að vinna með tilfinningar í gegnum myndsköpun. Við höfum verið í samvinnu við Kramhúsið með dans og hreyfingu og nú nýlega fórum við í samvinnu við líkamsræktarstöðina Hreyfingu fyrir þá sem vilja fara á almenna líkamsræktarstöð en eiga erfitt með að taka fyrsta skrefið. Líkamsræktin er í umsjón sjúkraþjálfara en iðjuþjálfi frá Ljósinu er einnig á staðnum til aðstoðar. Þá höfum við stofnað aðstandendahóp og fengum til liðs við okkur prest og hjúkrunarfræðing sem bæði hafa mikla reynslu af að vinna í hópum og hafa unnið mikið með Nýrri dögun sem eru sorgarsamtök. Við göngum tvisvar sinnum í viku meðfram sjónum við Ægissíðuna og kennum þeim sem vilja stafgöngu í leiðinni.

Það er mikið um sjálfboðastörf í Ljósinu og fullt af fólki sem hefur margvísleg hlutverk við að leiðbeina öðrum t.d. í handverkshúsinu. Það felst lækningamáttur í því að fá að hjálpa öðrum og margir hafa fundið nýjan tilgang og ný hlutverk. Við erum bjartsýn í Ljósinu og sjáum það eflast og dafna á komandi árum.

Hægt er að hafa samband við Ljósið í síma 561 3770.

Höfundur er iðjuþjálfi og forstöðumaður Ljóssins.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband